Um Drónatökur.is
Hugmyndin að Drónatökur.is varð til árið 2025. Hún hófst sem einföld hugmynd um að nýta dróna til að taka myndir og myndbönd frá öðru sjónarhorni en venjulega.
Verkefnið þróaðist fljótt áfram þar sem áhugi á drónum, myndatöku og myndvinnslu óx.
Í framhaldi ákváðum við að stofna Drónatökur.is með því markmiði að bjóða upp á þjónustu sem byggir á drónatökum og skapandi verkefnum.
Við leggjum áherslu á vandað efni, nýjar hugmyndir og stöðuga þróun.
Við erum þrír metnaðarfullir vinir með sameiginlegan áhuga á drónum.
Úr þeim áhuga varð til hugmyndin um að vinna saman að Drónatökur.is. Hver og einn leggur sitt af mörkum, hvort sem það er drónaflug, upptökur eða vinnsla efnis.
Með samvinnu og metnaði viljum við bæta færni okkar og þróast með hverju nýju verkefni.
Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð þar sem hvert verkefni er unnið af metnaði.
Með drónum, myndatöku og myndvinnslu viljum við sýna staði og augnablik frá nýju sjónarhorni.
Við stefnum jafnframt að stöðugri þróun með því að bæta færni okkar og læra nýja hluti.